Abler

Skráning í Abler (Sportabler) í gegnum GSM síma og/eða spjaldtölvu.

Sækja Abler appið (smáforritið) í Google play í Android símum og í Apple store í iPhone símum.

Leiðbeiningar þegar búið er að sækja forritið í símann/spjaldtölvuna:

  • Smella á Abler
  • Smella á Prófíll (neðst til hægri á skjánum)
  • Smella á Markaðstorg
  • Skrifa Hveragerðisbær í leitargluggann
  • Smella á Hveragerðisbæ (bæjarmerkið)
  • Velja Félag eldri borgara í Hveragerði
  • Finna námskeið sem er í boði eða viðburð
  • Fyrir hvern ertu að kaupa? 
  • Velja þitt nafn
  • Ef verið er að skrá/greiða fyrir annan einstakling (t.d. maka)
    Velja halda áfram og slá inn kt. viðkomandi
  • Velja greiðsluferli
  • Velja greiðslumáta og muna eftir að samþykkja skilmála
  • Staðfesta greiðslu með rafrænum skilríkjum.


Kvittun er hægt að sjá undir prófill og svo reikningar. Auk þess eiga kvittanir að koma í tölvupósti til greiðanda.