Vatnslitahópur

Vatnslitahópur hefur verið starfandi hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði um árabil. Hópurinn hittist á mánudögum kl. 10:00 í Þorlákssetri í litla sal.

Í hópnum kemur saman fólk sem á það sameiginlegt að hafa áhuga á vatnslitamálun, sköpun og góðum félagsskap. Félagar hafa sótt ýmis námskeið í vatnslitamálun og hluti hópsins er jafnframt í Myndlistarfélagi Árnessýslu.

Áhugi er á að fjölga í hópnum og efla starfið enn frekar, meðal annars með því að bjóða upp á námskeið í vatnslitamálun í Hveragerði.

Það skiptir ekki máli hvort þú hefur mikla reynslu af vatnslitamálun eða ert einfaldlega forvitin/n og langar að prófa þig áfram – allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.

Hópstjórar: