Tréútskurðarhópur


Hópur í tálgun og útskurði hefur verið starfandi hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði allt frá stofnun félagsins.

Hópurinn hefur aðstöðu í handmenntahúsi Grunnskólans í Hveragerði við Breiðumörk og hittist á föstudögum kl. 13:30.

Í hópnum koma saman áhugafólk með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Sumir hafa sótt námskeið í ýmiss konar handverki en það sem sameinar hópinn er áhuginn á tálgun, útskurði og skapandi handverki.

Starfið býður upp á notalega samveru þar sem þátttakendur geta unnið að sínum verkefnum, miðlað reynslu og hugmyndum og lært hver af öðrum.

Allir sem hafa áhuga á tálgun og útskurði eru hjartanlega velkomnir.

Hópstjóri: