
Boccia
Hjá félagi eldri borgara í Hveragerði hefur um árabil starfað öflugur bocciahópur. Þátttakendur eru allt að 16. Hópurinn hittist tvisvar í viku og eru flestir búnir að spila í mörg ár. Aðstaða hópsins er í salnum í Þorlákssetri þar sem er löglegur boccia völlur.
Aðalmarkmið hópsins er að hafa gaman og spila Boccia. Nýir þátttakendur fá kennslu og aðstoð frá þeim sem fyrir eru.
Spilað verður á miðvikudögum klukkan 10.00
Hópstjóri:
Vilhjálmur Albertsson