Hverafuglar


Hverafuglar er blandaður kór eldri borgara í Hveragerði. Kórinn var stofnaður árið 2003 og hefur því starfað af krafti í meira en tvo áratugi.

Æfingar fara fram á þriðjudögum kl. 11:30–13:00 í Þorlákssetri. Auk þess eru haldnar aukaæfingar og raddþjálfun þegar þörf krefur.

Starf Hverafugla er fjölbreytt, líflegt og skemmtilegt og snýst ekki eingöngu um sönginn. Félagslífið skipar stóran sess og meðal þess sem kórfélagar hafa tekið þátt í eru vinakóramót, ferðir, jólahlaðborð, árshátíð, bingó og grill. 🎶❤️

Kórinn kemur reglulega fram við ýmis tækifæri, meðal annars í heimsóknum til vinakóra og á Ási. Hverafuglar hafa einnig sungið á jólatónleikum á aðventuhátíð í Hveragerðiskirkju og tekið þátt í sameiginlegum tónleikum kóra í Hveragerði. Starfsárinu er gjarnan lokið með vortónleikum, meðal annars í samstarfi við aðra kóra og vinakóra á Suðurlandi.

Í starfi kórsins er lögð mikil áhersla á sönggleði, léttleika og góðan félagsskap og að öllum líði vel. Kórstjórinn Ölli er menntaður í tónlist og kórstjórn og leggur ríka áherslu á gleðina í söngnum.

Nýir kórfélagar eru teknir inn á haustin og eru félagar í Félagi eldri borgara í Hveragerði hjartanlega velkomnir.

Kórstjóri:

Söngur bætir heilsu og eykur ást og gleði!