Aðalfundur félags eldri borgara í Hveragerði haldinn í Þorlákssetri þann 13. febrúar 2025 klukkan 15:30


Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.


1.
Sigurlín Sveinbjarnardóttir  fráfarandi formaður setti fundinn. Hún skipaði  Ásu Pálsdóttur fundarstjóra og Sesselju Guðmundsdóttur ritara. 

Sigurlín minntist tveggja látinna frumkvöðla félagsins, þeirra Gísla Garðarssonar og Öldu Andrésdóttur.

2. Formaður las skýrslu starfsársins 2024.  Engar umræður  spunnust um hana enda ítarleg og vel gerð.

3. Kristinn Kristjánsson gjaldkeri fór yfir ársreikningana.  Stjórnin hefur ákveðið að halda árgjaldinu óbreyttu, þ.e. 5.000 kr. og verður það innheimt í gegnum heimabanka en ekki Abler, - í bili. Endurskoðandi félagsins, Auðunn Guðjónsson var í salnum til þess að skýra nákvæmar einstaka reikningsliði ef fólk vildi. Engar spurningar úr sal. Reikningar bornir upp og  einróma samþykktir sem og árgjaldið.

4. Drög að fjárhagsáætlun 2025 kynnt af Kristni Kristjánssyni gjaldkera. Búið er að gera drög að áætlun fyrir árið og þá í fyrsta skipti. Kristinn taldi mikilvægt að það yrði gert til frambúðar. Viðhald á húsnæðinu verður töluvert á árinu, t.d. þarf að skipta um glugga og setja upp loftræstikerfi. Búið er að semja við Hveragerðisbæ um styrk í það verkefni en félagið mun þurfa að taka lán vegna þessa. Vilhjálmur A. Albertsson er ráðinn húsvörður (allir eiga að hlýða Villa!) og  Valgerður Jónsdóttir heldur starfi sínu sem eldhús- og ræstitæknir. Þessi tvö fá einhver laun. Spurningar úr sal: Jóna Einarsdóttir spurði hvort setja þyfti eignina að veði fyrir viðhaldsláninu en Kristinn taldi að unnt yrði að fá skammtímalán. Spurt var hvort ekki mætti hækka árgjald en Kristinn sagði okkar gjald vera sambærilegt og hjá öðrum félögum.

5. Daði Ingimundarson varaformaður kynnti tillögur stjórnar til lagabreytinga á 1. 4. og 5. Kafla og voru þær einróma samþykktar.

6. Stjórnarkosning.  Tillögur  2025  - uppstillingarnefndar:

a) Formaður er kosinn til tveggja ára. Sigurlín Sveinbjarnardóttir hættir og Pálína Sigurjónsdóttir gefur kost á sér í hennar stað.

 b) Einn kosinn nú í aðalstjórn til tveggja ára. Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir gefur kost á sér en hún sat í varastjórn.

c) Vigdís Heiða Guðnadóttir kost á sér í varastjórn til tveggja ára.

d) Daði Ingimundarson gefur kost á sér í varastjórn til eins árs.

e) Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs og eins til vara. Hólmfríður Skaftadóttir og Þórdís Magnúsdóttir gefa kost á sér og  Jakob Árnason til vara.

Fyrrnefnd  nöfn samþykkt einróma.

Stjórn FEBHver árið 2025 skipa: Pálína Sigurjónsdóttir, Kristinn Kristjánsson, Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir, Birgir Þórðarson og Anna Elísabet Ólafsdóttir. Varastjórn: Daði Ingimundarson og Vigdís Heiða Guðnadóttir.

7.  Önnur mál:

a) Kolbrún Ósk skrifstofumaður kynnti námskeiðin sem byrjuð eru   

     og  verða á  þessari önn. Margt í boði sem endranær, m.a. jóga og 

     sundleikfimi í  húsum Heilsustofnunar samkv. samningi. 

b) Daði Ingimundarson skýrði störf Öldungaráðsins og kynnti málþing á Hótel  Örk þ. 22. mars n.k. kl. 11:00. Málþinginu er ætlað að ná fram sýn og óskum eldri borgara í Hveragerði um framtíð þeirra í bænum. Daði lýsti einnig aðgengi hreyfihamlaðra í Laugaskarði (sundlaug) sem er slæmt. Nú eru í gangi samskipti við Hveragerðisbæ um úrbætur (leysa tröppumál).  Sæti í Öldungaráði eiga sem stendur: Formaður: Daði Ingimundarson og Steinunn Aldís Helgadóttir. 

c) Kolbrún og Daði kynntu nýja heimasíðu félagsins sem ber nafnið feb.hvg.is  Þörf var á uppfærslu hennar. Stjórnendur síðunnar eru Liljar Mar Pétursson, forstöðumaður Frístundamiðstöðvar Bungubrekku og hönnuður síðunnar og Kolbrún, skrifstofumaðurinn okkar. Nýtt netfang var einnig  kynnt og er það febhver@ gmail.com. Núverandi Facebook síðu verður lokað innan tíðar eða  læst fyrir öðrum en félögum í FEBHver.

d) Sigurlín fráfarandi formaður tók við gjöf frá Agli Gústafssyni, málverki eftir Helgu Haraldsdóttur, sálugu, konu hans. Því verður komið fyrir á góðum stað.

e) Daði Ingimundarson færði Sigurlín fráfarandi formanni fallegan blómvönd frá félaginu með þakklæti fyrir góð störf.


8.
Fundi slitið klukkan 17:20 og síðan gengið í Skyrgerðina þar sem kaffi og meðlæti var í boði félagsins.