
Ljósmyndahópur
HVER er hópur áhugaljósmyndara hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði. Hópurinn var stofnaður í mars 2020 í Þorlákssetri.
Fyrstu tvö starfsárin fór starfsemi hópsins að mestu fram á Facebook vegna samkomutakmarkana af völdum Covid. Félagarnir létu það þó ekki stoppa sig heldur nýttu síma og tölvur til að vinna verkefni, deila myndum og halda sambandi. Þemavinna, hvatning, lífsleikni og gleði voru leiðarljós hópsins.
Þegar samkomutakmörkunum létti tók HVER snarlega kipp – eins og goshver! Þá gátu félagarnir loksins hist í Þorlákssetri, fullir af hugmyndum, áhuga og sköpunargleði.
Síðan þá hefur hópurinn lært og upplifað ótal margt saman og safnað í leiðinni bæði fallegum ljósmyndum og góðum minningum. Hópurinn hittist vikulega og leggur áherslu á að læra hvert af öðru, prófa nýja hluti og síðast en ekki síst – hafa gaman saman.
Starfið hefur verið fjölbreytt í gegnum árin. Meðal annars hefur hópurinn haldið ljósmyndasýningu í Hveragarðinum á Blómstrandi dögum, sótt námskeið í tæknilæsi og geymslu mynda í skýi, heimsótt ljósmyndasýningar og aðra áhugaljósmyndahópa, fengið gestakennara til leiðsagnar og farið í fjölbreyttar ljósmyndaferðir.
HVER er staður fyrir áhugaljósmyndara til að læra, skapa, deila og njóta góðrar samveru.
Hópstjóri: