
Leshópur
Leshópur hefur verið starfandi hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði frá árinu 2012 og hefur í gegnum tíðina ýmist verið kallaður Bókmenntahópur eða Leshópur.
Hópurinn hittist á föstudögum kl. 10:30–12:00 í Þorlákssetri og eru allir félagsmenn hjartanlega velkomnir. Það er alls engin skylda að lesa upp – þeir sem vilja geta einfaldlega komið, hlustað og notið samverunnar.
Fundirnir eru frjálslegir og fjölbreyttur hópur þátttakenda, með ólík áhugamál og áhugasvið, gerir hverja samveru einstaka og skemmtilega.
Á hverjum fundi lesa tveir til fjórir þátttakendur, sem ákveðnir eru fyrirfram, sjálfvalið efni fyrir hópinn. Efnið getur verið af ýmsum toga; kafli úr skáldsögu, smásaga, fræðigrein, ljóð, söguleg frásögn, lausavísa, frumsamið efni eða einfaldlega eitthvað sem viðkomandi langar að deila með hópnum.
Tvisvar yfir veturinn velur hópurinn sameiginlega skáldsögu sem allir lesa og er hún síðan tekin til skemmtilegrar umræðu.
Markmiðið er að njóta bókmennta, góðra umræðna og notalegrar samveru í góðum félagsskap.
Hópstjóri: