Lög Félags eldri borgara í Hveragerði 


1. kafli. Nafn, heimili og hlutverk 

Félagið heitir Félag eldri borgara Hveragerði, skammstafað FebHver. Heimili þess og  varnarþing er í Þorlákssetri að Breiðumörk 25b, 810 Hveragerði. Markmið félagsins  er að vinna að velferðarmálum eldra fólks með því að: Vekja athygli og auka skilning  almennings, þjónustufyrirtækja, ríkis og sveitarfélagsins á þörfum eldri borgara.  Stuðla að aukinni þjónustu fyrir eldri borgara. Skipuleggja og framkvæma tómstunda og félagsstarf meðal félaga. Vinna að öðrum þeim málum sem til hagsbóta teljast  fyrir eldri borgara. 


2. kafli. Félagsaðild 

Almenna félagsaðild eiga allir þeir sem búa í Hveragerði og nágrenni og hafa náð 60  ára aldri og/eða eftirlaunaaldri sé hann fyrr. Makar félagsmanna eiga rétt á aðild að  félaginu óháð aldri þeirra. Einstaklingar, félög og fyrirtæki geta orðið styrktaraðilar að  félaginu. Styrktaraðilar hafa þó ekki atkvæðisrétt á fundum félagsins. Stjórn félagsins  skal halda skrá yfir félagsmenn. 


3. kafli. Árgjöld og tekjur 

Tekjur félagsins eru félagsgjöld, rekstrarstyrkur Hveragerðisbæjar á hverjum tíma,  gjafir, einstök framlög og fjáraflanir félagsins. Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin á  aðalfundi ár hvert. Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið. Félagið er í  Landssambandi eldri borgara. Felld verði niður félagsgjöld við 90 ára aldur félaga. 


4. kafli. Skipan stjórnar og verkefni 

Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir til vara. Formaður, varaformaður, gjaldkeri,  ritari, meðstjórnandi og tveir til vara. Kjörtímabilið er tvö ár. Formaður er kosinn  sérstaklega. Enginn skal sitja í formannssæti lengur en tvö kjörtímabil í röð. Stjórnin  skiptir með sér verkum. Formaður er forsvarsmaður félagsins, hann boðar til funda og stjórnar þeim.  Gjaldkeri annast almennar fjárreiður félagsins í umboði stjórnar samkvæmt  almennum reglum þar um. Ritari heldur gerðabók félagsins og skráir þar ályktanir  funda, einnig ferðir og aðra starfsemi félagsins. Stjórn félagsins ber ábyrgð á  fjárreiðum þess. Stjórn félagsins er heimilt að skipa nefndir til að annast tiltekin verkefni, ákveða  verksvið þeirra og setja þeim starfsreglur. Slíkar nefndir heyra beint undir stjórn  félagsins og starfa á ábyrgð hennar. Þær kjósa sér stjórn og tilkynna það stjórn  félagsins. Nefndir með sérrekstur skulu láta stjórn félagsins í té ársreikninga sína, áritaða af stjórn og skoðunarmanni reikninga. Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn á  fasteign félagsins, skipar fulltrúa í hússtjórn og tekur ákvörðun ef leigja á eða veita  öðrum en félagsmönnum afnot af fasteign félagsins. Breyting á fasteign félagsins  verður þó að hljóta samþykki aðalfundar. Óheimilt er, nema að fengnu samþykki  löglega boðaðs félagsfundar, að setja fasteign félagsins sem tryggingu fyrir skuld,  þ.á.m. að veðsetja hana. Engin föst laun greiðast fyrir stjórnar- né fundarsetu. Öll meiriháttar mál skal stjórnin  bera undir félagsfund.


5. kafli. Aðalfundur 

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundi er þó óheimilt að  samþykkja fjárskuldbindingar sem ekki hafa hlotið umfjöllun í stjórn félagsins. Á  næsta aðalfundi fyrir bæjarstjórnarkosningar skulu kosnir þrír fulltrúar í öldungaráð  bæjarins og þrír til vara. Kjörtímabil fulltrúa félagsins er það sama og fulltrúa  bæjarins, þ.e. 4 ár. Þegar kosið er í stjórn, öldungaráð, fulltrúa á landsfund ofl. skal  leitast við að gæta kynjajafnréttis. Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert. Boða skal til  aðalfundar og félagsfundar með tveggja vikna fyrirvara með tölvupósti til  félagsmanna, á heimasíðu félagsins og í Þorlákssetri. Aðalfund skal auk þess  auglýsa í svæðisblaði á Suðurlandi. Í fundarboði skal tilgreina hverjir gangi úr stjórn félagsins. Komi fram skrifleg krafa  a.m.k. 10% félagsmanna um félagsfund er stjórninni skylt að halda fund svo fljótt  sem auðið er. Verkefni aðalfundar eru: 


  1. Endurskoðaðir ársreikningar kynntir og bornir upp til samþykktar. 2. Lagabreytingar. 
  2. Ákveðin árgjöld félaga. 
  3. Kosning formanns, fjögurra aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn og tvo  skoðunarmenn og einn til vara. 
  4. Kosning fulltrúa á þing Landssambands eldri borgara. 
  5. Önnur mál. 


6. kafli. Uppstillingarnefnd 

Stjórn félagsins skipar þrjá menn í uppstillingarnefnd og setur henni formann.  Uppstillingarnefndin skal gera tillögur um: Formann félagsins, menn í stjórn og  varastjórn og skoðunarmenn ársreikninga. Einnig fulltrúa á þing LEB það ár sem  þingið er haldið. Tillögur uppstillingarnefndar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins  í tvær vikur fyrir aðalfund og skulu þær auglýstar. Tillögur félagsmanna um einstaka  menn til stjórnarkjörs skulu berast uppstillingarnefnd eða skrifstofu félagsins minnst  fjórum vikum fyrir aðalfund. 


7. kafli. Atkvæðavægi og breytingar 

Á stjórnar- og félagsfundum ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Til lagabreytinga  þarf a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillaga til lagabreytinga skal tilkynnt í  fundarboði aðalfundar. Fundir félagsins eru löglegir sé til þeirra boðað með tilskildum  fyrirvara og á löglegan hátt. Verði félagsslit skulu eignir félagsins renna til  hagsmunamála aldraða samkvæmt ákvörðun sama félagsfundar. 


Þannig samþykkt á aðalfundi 13. febrúar 2025.