
Handavinnuhópur
Handavinnuhópur hefur lengi verið starfandi hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði. Hópurinn hittist á mánudögum kl. 13:00 í litla sal Þorláksseturs yfir vetrartímann.
Tilgangur hópsins er fyrst og fremst að njóta góðrar samveru, kynnast fleirum, hjálpast að og læra eitthvað nýtt. Í hópnum hefur í gegnum tíðina myndast mikil og góð vinátta og eru allir sammála um að þar sé einstaklega skemmtilegt að vera.
Fjölbreytt handavinna er unnin og kemur hver með sitt verkefni. Mest er um prjón og hekl, en hópurinn er alltaf opinn fyrir nýjum hugmyndum og allir hjálpast að.
Hópurinn hefur einnig tekið þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum. Hluti hans fór meðal annars á Hvolsvöll og saumaði í Njálurefilinn og félagar hafa sótt prjónakvöld Bókasafns Hveragerðis og notið tilsagnar þegar hún hefur verið í boði.
Hefð er fyrir því að ljúka vetrarstarfinu með því að gera sér glaðan dag og fara saman út að borða.
Allir eru hjartanlega velkomnir í handavinnuhópinn.
Hópstjóri: