
Gönguhópur
Gönguhópurinn hefur verið starfandi frá árinu 2003 og starfar enn af fullum krafti allt árið um kring.
Mæting er við Þorlákssetur alla þriðjudaga kl. 10:00. Þegar allir eru mættir er ákveðið hvert skal halda og ræðst leiðin gjarnan af veðri og vindum. Yfirleitt er gengið í um það bil klukkustund.
Stundum er ákveðið fyrirfram hvert ferðinni er heitið. Það getur verið stutt ganga og kaffihúsaferð í bænum eða safnast er í bíla og ekið á fallegan stað í nágrenni Hveragerðis. Oftar en ekki er þá boðið upp á smá hressingu að göngu lokinni.
Í lok vetrar gerir hópurinn sér glaðan dag og fer saman út að borða.
Allir eru hjartanlega velkomnir og enginn þarf að hafa áhyggjur af því að farið sé of hratt yfir. Þegar þörf er á skiptir hópurinn sér í tvo hópa eftir getu hvers og eins.
Við hvetjum félaga til að mæta og njóta hreyfingar, góðs félagsskapar og fallegs umhverfis.
Hópstjóri: