Fundargerð aðalfundar Félags eldri borgara Hveragerði 21. feb 2026 haldinn í Glæsigerði Hótel Örk kl 14.


Formaður félagsins Pálína Sigurjónsdóttir setti fundinn og minntist Auðar Guðbrandsdóttur sem var formaður FEBH í mörg ár.

Formaður lagði til að Sigrún Arndal yrði fundarstjóri og Eyvindur Bjarnason ritaði fundargerð.


Skýrsla stjórnar:

Pálína formaður fór yfir helstu störf stjórnar og félagsins á liðnu starfsári s.s. umfangsmiklar framkvæmdir við húsnæði og ferðalög bæði innanlands og til útlanda.

Einnig fór formaður vel yfir störf nefnda og stjórnar á liðnu ári og ýmsum atburðum og heimsóknum utanaðkomandi. (Nánar má sjá í fylgisk. Ársskýrsla stjórnar Félags eldri borgara)

Öldungaráð hefur starfað af krafti og haldið fræðslufundi reglulega um framtíðarhorfur og þ.h.

Félagar eru nú 415 og starfsmenn 3 þau Kolbrún, Valgerður og Vilhjálmur.

Formaður þakkaði hópstjórum, nefndarmönnum og öllum þeim sem hafa komið að starfi FEBH fyrir vel unnin störf.

Umræður um skýrslu stjórnar:

Daði Ingimundarson kom aðeins inn á að áfram væri unnið að frekari uppbyggingu um húsnæðismál og starfsemi félagsins almennt.

Skýrsla ársreikninga:

Kristinn gjaldkeri fór yfir og útskýrði reikningana skilmerkilega og voru þeir samþykktir athugasemdalaust og án umræðna.

Fjárhagsáætlun 2026:

Kristinn gjaldkeri útskýrði hvers vegna væri lagt til að félagsgjöld væru óbreytt frá sl. ári og einnig benti hann á að hópastarf gæti sótt um styrki til útgjalda til stjórnar félagsins ef á þyrfti að halda. Í umræðum var spurt um áætlað tap á rekstri á næsta ári og lagt var til að hækka félagsgjöld til að mæta taprekstrinum, einnig var talsvert rætt um styrki til hópanna. Að lokum var áætlunin samþykkt athugasemdalaust.

Kosningar:

Allir, sem áttu að ganga úr aðalstjórn og varastjórn gáfu kost á sér til áframhaldandi starfa. Aðrir sem gáfu kost á sér eru: Elín Pálsdóttir, Eyjólfur Kolbeins og Þóra Sigurðard.

Stjórn félagsins skipa því nú eftir kosningar: Pálína Sigurjónsd. formaður, Aðrir í stjórn eru Anna E. Ólafsdóttir, Kristinn G. Kristjánsson, Ingibjörg S. Guðjónsdóttir og Þóra Sigurðardóttir.

Í varastjórn eru:

Daði V. Ingimundarson og Vigdís Heiða Guðnadóttir.

Í Öldungaráð Hveragerðis voru kosin: Aðalmenn: Pálína Sigurjónsdóttir, Daði Ingimundarson og Sveinn Pálsson. Til vara: Þóra Sigurðardóttir, Anna Elísabet Ólafsdóttir og Birgir Þórðarson.

Skoðunarmenn reikninga:

Hólmfríður Skaftadóttir, Þórdís Magnúsdóttir og til vara Sigríður Sigurjónsdóttir.

Önnur mál:

Margrét Magnúsdóttir er að bjóðast til að aðstoða við að koma á laggirnar nýjum ljósmyndahópi. Eyjólfur Kolbeins sagði frá útskurðarhópnum og kom einnig inn á skipulagsmál bæjarins og hvatti fólk til að kynna sér þau, Kolbrún sagði frá Hverafuglum og var að skora á fólk að taka þátt í starfinu, Elín Pálsdóttir kom inn á tölvumál og heimasíðu félagsins, Daði svaraði fyrir heimasíðuna og fésbókina og ræddi um að lagfæra mætti hvoru tveggja og einnig ræddi hann um fasteignagjöld eldri borgara.

Ingibjörg Guðjónsdóttir ræddi um opið hús eldri borgara og hvatti fólk til að leggja eitthvað til málanna, Sigurbjörg kom að því að reyna að halda sýningar á því sem fólk er að búa til föndra, mála og þ.h., Sigrún Arndal benti fólki á gæta að því að búið væri að breyta gjaldtöku í bókasafni Hveragerðis fyrir eldri borgara.

Lokaorð formanns:

Pálína formaður þakkaði fyrir samstarf við þá sem eru að hverfa frá störfum í þágu félagsins og einnig þakklæti til fundarins og minnti á ,,sveitaball’’ að Gaulverjabæ þann 10. apríl nk.

Fundarstjóri þakkaði félögum fyrir góða fundarsetu og sleit fundi kl 16.30.

Eyvindur Bjarnason ritaði fundarg.