3. nóvember 2026
Formannapistill

Ágætu félagar og aðrir síðugestir !
Nú erum við komin á fullt í haustdagskránni í allri hópastarfsemi og námskeiðum og þar fyrir
utan er þétt dagskrá hjá félaginu fram til áramóta. Í nóvember ætlum við að hafa
Hveragerðis-þema í opnu húsi alla miðvikudaga. Þar verður t.d. fyrirlestur, myndasýning,
fluttar bernskuminningar og auðvitað alltaf spall í hvert sinn. Við ætlum líka að fara á
sveitaball á Flúðum og svo á Ölverk að fá okkur Pizzu, bjór og spila bingo. Í desember förum
á leiksýningu í Þjóðleikhúsinu og á jólahlaðborð á Hótel Örk. Allir þessi viðburðir verða
auglýstir hér á heimasíðunni okkar og ég vona að allir finni eitthvað við sitt hæfi og skoði
síðuna sem oftast. En núna næst er það ballið á Flúðum, næsta föstudag, 6. Nóv. Skráið
ykkur endilega og takið þátt í fjörinu, bæði á balli og í rútu. Sjáumst þar !
Pálína Sigurjónsdóttir