15. september 2026

Ný heimasíða

Síðastliðið vor tók stjórn Félags eldri borgara í Hveragerði ákvörðun um að láta gera nýja vefsíðu fyrir félagið og eftir nokkra leit var ákveðið að semja við hugbúnaðarfyrirtækið Stefnu um uppbyggingu og tæknilausnir við gerð heimasíðunnar. Í framhaldi var þeim Thelmu, Kolbrúnu og Daða falið að vinna áfram að þessu verkefni og birtist nú frumútgáfa heimasíðunnar hér. Markmið okkar var að byggja upp einfalda heimasíðu auðlesna fyrir alla sjónskerta sem aðra og að hún innihaldi góðar upplýsingar um starfsemi félagsins á hverjum tíma. 

Daði Viktor Ingimundarson

Thelma Rós Kristinsdóttir

Kolbrún Ósk Guðmundsdóttir