16. september 2026

Pílukast

Pílukast

Þegar stjórn FebHver kom saman á fyrsta fund haustsins til að huga að væntanlegri vetrardagskrá voru hefðbundin verk sett á dagskrá en síðan var leytað fleirri möguleika.

Að koma á pílukasthóp var ein af hugmyndunum. Stjórn samþykkti að kanna málið og fylgdi því loforð um kaup ef ekki væri um háa fjárhæð að ræða. Eftir nokkra eftirgrenslan og skoðun á plássi fyrir slíkt í Þorlákssetri var ráðist í að kaupa verulega flott píluspjald með viðeigandi tölvu sem les af spjaldi stiginn og reiknar útkomuna. Auglýst var eftir hópstjóra og síðan fundinn tími fyrir píluhópinn. Farið var í að breyta til í litla salnum og skápar færðir til og sett upp góð aðstaða fyrir pílukast. Næsatkomandi mánudag kl. 16:00 til 18:00 verður áhugavert að sjá hvað margir vilja vera með í þessum skemmtilega leik sem pílukast er. Vonar stjórn að þarna sé að fara af stað áhugaverður hópur. Ef vel tekst til hugsum við okkur að píla verði spiluð tvisvar í viku tvo tíma í senn.

Vonum að það mæti sem flestir til að spreyta sig í pílukasti við mjög góðar aðstæður í litla salnum okkar í Þorlákssetri.

Frétt frá stjórn

Kristinn Kristjánsson