13. október 2026
Skráning á námskeið

Kæru félagar!
Við minnum á að skráning á námskeið 2 í vatnsleikfimi og jóga í vatni hefst á morgun, miðvikudaginn 14. október, á slaginu kl. 10.00.
Skráning fer fram á abler.io. Þar veljið þið Markaðstorg og leitið að Hveragerðisbær til að finna námskeiðin.
Ef námskeiðið sem þið viljið sækja er fullt, mælum við með að skrá ykkur á biðlista. Það getur losnað pláss ef einhver hættir við og þá gæti komið að ykkur!
Varðandi jóga í vatni: Ef hópurinn fyllist er mikilvægt að skrá sig á biðlista. Ef nægilega margir skrá sig þar er möguleiki á að bæta við öðrum hópi á fimmtudögum kl. 17.00.
Ef þið lendið í vandræðum með skráninguna eða treystið ykkur ekki til að skrá ykkur sjálf, eruð þið hjartanlega velkomin á skrifstofu félagsins í Þorlákssetri. Við aðstoðum ykkur með ánægju!