Kínaskák er spiluð alla fimmtudaga kl. 13:00–16:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri spilamennsku í góðum félagsskap. Góður félagsskapur, spil og skemmtileg samvera eru í fyrirrúmi.
Allir hjartanlega velkomnir!
Kínaskák er spiluð alla fimmtudaga kl. 13:00–16:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri spilamennsku í góðum félagsskap. Góður félagsskapur, spil og skemmtileg samvera eru í fyrirrúmi.
Allir hjartanlega velkomnir!
Boccia er spilað alla fimmtudaga kl. 10:00–12:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegum leik í góðum félagsskap. Boccia hentar öllum og það er alltaf líf og fjör í salnum!
Allir hjartanlega velkomnir!
Bridgehópurinn hittist alla fimmtudaga kl. 13:00–16:00 í litla salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri spilamennsku í góðum félagsskap. Hvort sem þú ert vanur bridgespilari eða vilt dusta rykið af kunnáttunni, þá ertu hjartanlega velkomin/n.
Góður félagsskapur og skemmtilegar spilastundir – allir hjartanlega velkomnir!
Stólaleikfimi er alla fimmtudaga kl. 17:00–17:45 undir leiðsögn Rakelar Hlynsdóttur.
Stólaleikfimi er létt og skemmtileg hreyfing þar sem æfingarnar eru framkvæmdar sitjandi eða með stuðningi frá stól. Komdu og hreyfðu þig í góðum félagsskap og taktu þátt á þínum forsendum.
Allir hjartanlega velkomnir
Leshópurinn hittist alla föstudaga kl. 10:00–12:00 í litla salnum í Þorlákssetri.
Komdu og njóttu notalegrar stundar í góðum félagsskap þar sem bækur, lestur og skemmtilegar umræður eru í fyrirrúmi. Hvort sem þú vilt lesa með hópnum eða einfaldlega koma og hlusta, þá ertu hjartanlega velkomin/n.
Allir hjartanlega velkomnir
Tálgunar- og útskurðarhópurinn hittist alla föstudaga kl. 13:30–15:30 í Handmenntahúsi Grunnskólans við Breiðumörk.
Þar kemur hópurinn saman og vinnur að fjölbreyttum verkefnum í tré, skiptist á hugmyndum og nýtur góðrar samveru. Hvort sem þú hefur reynslu af tálgun og útskurði eða langar að kynna þér handverkið, þá ertu hjartanlega velkomin/n.
Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir!
Dansleikur fyrir eldri borgara á Suðurlandi – á Flúðum
Það verður dansað, spjallað og haft gaman á Flúðum!
Tími: Kl. 19:00–22:00
Hljómsveit: Jón Bjarnason stjórnar hljómsveit.
Miðaverð: 2.000 kr.
Rúta frá Hveragerði
Þeir sem vilja nýta sér rútuferð geta skráð sig með því að senda tölvupóst á febhver@gmail.com eða hringja í síma 483-5216 á opnunartíma skrifstofunnar.
Rútan leggur af stað frá Þorlákssetri á bilinu kl. 17:00–17:30. Nánari brottfarartími verður auglýstur þegar nær dregur.
Handavinnuhópurinn hittist alla mánudaga kl. 13:00–15:00 í litla salnum í Þorlákssetri.
Komdu með handavinnuna þína og njóttu notalegrar stundar í góðum félagsskap. Hvort sem þú prjónar, heklar eða fæst við annars konar handavinnu er alltaf gaman að hittast, spjalla og skapa saman.
Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir
Píluhópurinn hittist alla mánudaga kl. 16:00–18:00 í litla salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri pílukaststund í góðum félagsskap. Það skiptir engu hvort þú ert vanur pílukastari eða langar einfaldlega að prófa – gleðin og samveran eru í fyrirrúmi.
Allir hjartanlega velkomnir
Gönguhópurinn hittist alla þriðjudaga kl. 10:00–11:00.
Hópurinn hittist oftast við Þorlákssetur og ákveður í sameiningu hvert skal halda hverju sinni.
Allir velkomnir – reimum á okkur skóna og njótum góðrar hreyfingar og félagsskapar!
Kórinn Hverafuglar æfir alla þriðjudaga kl. 11:30–13:00 í Þorlákssetri.
Á æfingum er sungið af gleði og krafti í góðum félagsskap. Söngurinn sameinar og það er alltaf notaleg stemning þegar Hverafuglarnir koma saman.
Við hlökkum til að sjá ykkur á næstu æfingu!
Félagsvist er spiluð alla þriðjudaga kl. 15:00–17:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Komdu og eigðu notalega stund í góðum félagsskap. Allir velkomnir!
Boccia er spilað alla miðvikudaga kl. 10:00–12:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegum leik í góðum félagsskap. Boccia hentar öllum og það er alltaf líf og fjör í salnum!
Ljósmyndaklúbburinn HVER hittist alla miðvikudaga kl. 13:00–15:00 í stóra salnum í Þorlákssetri.
Hér koma ljósmyndaáhugamenn saman, deila reynslu og hugmyndum og njóta sameiginlegs áhuga á ljósmyndun.
Allir ljósmyndaáhugamenn hjartanlega velkomnir
Skákhópurinn hittist alla miðvikudaga kl. 13:00–15:00 í litla salnum í Þorlákssetri.
Hvort sem þú ert vanur skákmaður eða langar einfaldlega að dusta rykið af skákkunnáttunni, þá ertu hjartanlega velkomin/n að slást í hópinn.
Góður félagsskapur og skemmtilegar skákir – allir hjartanlega velkomnir!
Opið hús alla miðvikudaga
Alla miðvikudaga kl. 15:00 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin í Opið hús í Þorlákssetri.
Dagskráin er fjölbreytt! Stundum fáum við góða gesti í heimsókn eða fræðandi og skemmtileg erindi, en þess á milli njótum við þess einfaldlega að hittast, spjalla um daginn og veginn og eiga góða stund saman.
Það er alltaf notalegt að hittast, hlæja saman og eiga góðar samverustundir.
Öll eru hjartanlega velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur!
Skemmtikvöld á Ölverk
Takið kvöldið frá og komið með okkur í skemmtilegt kvöld!
Skemmtinefnd FEB Hveragerði býður til notalegs og fjörugs skemmtikvölds á Ölverk föstudaginn 13. nóvember kl. 18:00.
Glæsileg pizzaveisla
Bingó með glæsilegum vinningum!
Verð: 3.500 kr. á mann
Innifalið í verði er glæsileg pizzaveisla og eitt bingóspjald.
Skráning og greiðsla fara fram á skrifstofu félagsins.
Skráningar- og greiðslufrestur er til og með 11. nóvember.
Takmarkað pláss – aðeins 62 manns komast að!
Tryggðu þér sæti í tíma og komdu með í skemmtilegt kvöld með góðum félögum!
Kyrrðarhópurinn hittist fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar kl. 17:40–18:30 í Þorlákssetri.
Komdu og njóttu notalegrar stundar í góðum félagsskap, þar sem kyrrð, ró og samvera eru í fyrirrúmi.
Allir hjartanlega velkomnir.
Næsta leikhúsferð verður farin á Ormstungu í Þjóðleikhúsinu 5. desember kl. 16
Miðverð og rúta kr 14.000
Síðasti dagur að skrá sig er 9. nóvember á skrifstofu.